HUGLJÓMUN SJÁLFSÞEKKINGAR
Flest okkar, eigum í fylgsnum huga okkar sögu og reynslu af upplifun eða hugljómun einhverskonar sem erfitt er að útskýra.
Í þessari bók skyggnumst við svolítið innávið og spyrjum okkar næma vitundarsvið spurninga sem sumum getur ef til vill fyndist torveldar en öðrum finnst þær rökrétt framhald af áleitnum spurningum um hérvist okkar og tilgang.
Oft þegar við, eða þau okkar sem taka við þessum hugljómunum og dvelja við þær til að reyna að glöggva sig á uppruna þeirra og kannski skilaboðum sem ef til vill leynast í þeim. Eru settar fram skýringar á næmi þess fólks og sagt að það sé Gömul Sál.
Við viljum trúa því að þessar hugljómanir séu vegvísir til aukinnar sjálfsþekkingar. Þó að bók þessi svari ef til vill engum spurningum, þá er það reynsla margra að við lestur hennar og sambærilegra bóka kemst fólk í hugarástand sem auðveldar þeim að opna á næmi sitt og meðtaka sínar eigin uppljómanir.
Megir þú njóta lestursins.





Leave a Reply